Gamla testamentiðSpámennirnir
Kyrja þú upp harmljóð yfir höfðingjum Ísraels
og seg: Hvílík ljónynja var móðir þín meðal ljóna; hún lá meðal ungra ljóna, ól upp ljónshvolpa sína.
Og hún kom upp einum af hvolpum sínum; hann varð ungljón, og hann lærði að ná sér í bráð, hann át menn.
Þá höfðu þjóðirnar útboð í móti honum; var hann veiddur í gröf þeirra, og teymdu þeir hann á nasahring til Egiptalands.
En er hún sá, að hún hafði breytt heimskulega, að von hennar var horfin, tók hún annan af hvolpum sínum; gjörði hún hann að ungljóni.
Og hann gekk meðal ljóna; hann varð ungljón, og hann lærði að ná sér í bráð, hann át menn.
Og hann gjörði margar meðal þeirra að ekkjum og eyddi borgir þeirra, svo að landið lagðist í auðn og alt, sem í því var, vegna öskurs hans.
Þá settu þjóðir sig móti honum, úr héruðunum umhverfis, og köstuðu neti sínu yfir hann; í gröf þeirra varð hann veiddur,
Og þeir drógu hann á nasahring í búr og fluttu hann til Babel-konungs og settu hann í dýflissu, til þess að rödd hans heyrðist ekki framar á Ísraels fjöllum.
Móðir þín var eins og vínviður, sem gróðursettur var hjá vatni; hann varð ávaxtarsamur og fjölgreinóttur af vatnsgnóttinni.
Og ein af greinmn hans varð veldissproti, og hann óx hátt upp í milli þéttra greina og var frábær fyrir hæðar sakir, með því að angar hans voru svo margir.
Þá var vínviðinum rykt upp í heift og varpað til jarðar, og austanvindurinn skrældi ávöxt hans. Hin sterka grein hans var rifin af, og hún skrælnaði; eldur eyddi henni.
Og nú er hann gróðursettur í eyðimörku, í þurru og vatnslausu landi.
Og eldur brauzt út frá grein hans, sem eyddi öngum hans, og engin sterk grein var framar á honum, enginn veldissproti. Þetta eru harmljóð og urðu að harmljóðum.