Gamla testamentiðSpámennirnir
Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:
Manns-son, hvað hefir vínviðurinn fram yfir allan annan við, teinungurinn, sem er á meðal skógartrjánna?
Verður af honum tekinn efniviður til smíða, eða fæst úr honum snagi, til þess að hengja á alls konar verkfæri?
Nei, hann er hafður til eldsneytis; þegar eldurinn hefir brent báða enda hans og sé miðjan sviðnuð, hvert gagn er þá að honum til efniviðar?
Meðan hann enn er heill, verður ekkert úr honum smíðað, því síður að nú verði nokkuð úr honum gjört, þegar eldurinn hefir brent hann og hann er sviðnaður.
Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Eins og vínviðinn meðal skógartrjánna, sem eg hefi ætlað til eldsneytis, svo vil eg fara með Jerúsalembúa.
Og eg skal snúa auglit mínu gegn þeim: þeir hafa komist úr eldinum, og eldurinn skal eyða þeim, og þér skuluð viðurkenna, að eg er Drottinn, þegar eg sný augliti mínu gegn þeim.
Og eg gjöri landið að auðn, af því að þeir hafa brugðið trúnaði við mig — segir Drottinn Guð.