Esekíelsbók 1Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Esekíelsbók 1

Á þrítugasta árinu, í fjórða mánuðinum, hinn fimta dag mánaðarins, þá er eg var á meðal hinna herleiddu við Kebaríljótið, opnaðist himininn og eg sá guðlegar sjónir.

Fimta dag mánaðarins — það var fimta árið eftir að Jójakín konungur var burt fluttur—,

þá kom orð Drottins til Esekíels Búsísonar prests í Kaldealandi við Kebar-fljótið, og hönd Drottins kom þar yfir hann.

Eg sá, og sjá: stormvindur kom úr norðri og ský mikið og eldur, sem hnyklaðist saman, og stóð af því bjarmi umhverfis, og út úr honum sást eitthvað, sem glóði eins og lýsigull.

Og út úr honum sáust myndir af fjórum verum. Og þetta var útlit þeirra: mannsmynd var á þeim.

Hver þeirra hafði fjórar ásjónur og hver þeirra hafði fjóra vængi.

Fætur þeirra voru keipréttir og iljarnar eins og kálfsifjar, og þeir blikuðu eins og skygður eir.

Og undir vængjum þeirra á hliðunum fjórum voru mannshendur. Og ásjónur þeirra fjögurra og vængir

en vængir þeirra lágu hver upp að öðrum — sneru sér ekki við, er þær gengu, heldur gekk hver beint af augum fram.

En ásjónur þeirra litu svo út: mannsandlit að framan, ljónsandlit hægramegin á þeim fjórum, nautsandlit vinstramegin á þeim fjórum og arnarandlit á þeim fjórum inn á við.

Og vængir þeirra voru þandir upp á við; hver þeirra hafði tvo vængi, sem voru tengdir saman, og tvo vængi, sem huldu líkami þeirra.

Og þær gengu hver fyrir sig beint af augum fram; þær gengu þangað, sem andinn vildi fara; þær snerust eigi við í göngunni.

Og milli veranna var að sjá sem eldsglæður brynnu; það var eins og blys færu aftur og fram milli veranna, og bjarma lagði af eldinum og út frá eldinum gengu leiftur.

Og verurnar hlupu fram og aftur eins og glampi af leiftri.

Og enn fremur sá eg, og sjá: eitt hjól stóð á jörðunni hjá hverri af verunum fjórum.

Og hjólin voru á að líta eins og þegar blikar á krýsolít, og öll fjögur voru þau samlík og þannig gjörð, sem eitt hjólið væri innan í öðru hjóli.

Þau gengu til allra fjögurra hliða; þau snerust eigi, er þau gengu.

Og hjólbaugar þeirra — þeir voru háir og ógurlegir, og hjólbaugar þeirra voru alsettir augum alt umhverfis á þeim fjórum.

Og þegar verurnar gengu, þá gengu og hjólin við hliðina á þeim; og þegar verurnar hófu sig frá jörðu, þá hófu og hjólin sig.

Þangað sem andinn vildi fara, þangað gengu þær, og hjólin hófust upp samtímis þeim; því að andi veranna var í hjólunum.

Þegar þær gengu, gengu þau einnig, þegar þær stóðu kyrrar, stóðu þau og kyr, og þegar þær hófust frá jörðu, hófust og hjólin samtímis þeim; því að andi veranna var í hjólunum.

Og uppi yfir höfðum verunnar var því líkast sem hvelfing væri, blikandi sem kristall; þandist hún út uppi yfir höfðum þeirra.

Og undir hvelfingunni voru vængir þeirra út þandir hver á móti öðrum; og hver þeirra hafði tvo vængi, sem huldu líkami þeirra.

Og eg heyrði vængjaþyt þeirra, eins og við mikilla Vatna, sem þrumu hins Almátka, er þær gengu; gnýrinn og hávaðinn Var sem gnýr í herbúðum; þegar þær stóðu kyrrar, létu þær vængina síga.

En þytur var uppi yfir hvelfingunni, sem var yfir höfðum Þeirra; þegar þær stóðu kyrrar, létu þær vængina síga.

En uppi yfir hvelfingunni, sem var yfir höfðum þeirra, var að sjá sem safírsteinn væri, í lögun sem hásæti, og þar uppi á hásætinu, sem svo sýndist, var mynd nokkur í mannslíki.

Sú mynd þótti mér því líkust sem Blóandi lýsigull væri, þar neðan frá, sem mér þótti mittið vera, og upp eftir; en ofan frá því, sem mér þótti mittið vera, og niður eftir, þótti mér hún álits sem eldur; og umhverfis hana var bjarmi.

Bjarminn umhverfis var tilsýndar líkur boga þeim, sem í skýinu stendur, þegar rignir. Þannig var ímynd dýrðar Drottins á að líta. Og er egsá hana, féll eg fram á ásjónu mína; og eg heyrði rödd einhvers, sem talaði.