Gamla testamentiðSpámennirnir
Eg sá Drottin standa við altarið, og hann sagði: Slá þú á súluhöfuðið, svo að þröskuldarnir skjálfi; brjót þá sundur og kasta í höfuð þeim öllum. Og síðustu leifar þeirra vil eg deyða með sverði; enginn þeirra skal komast undan á flótta og enginn þeirra af bjargast.
Þótt þeir brjótist niður í undirheima, þá skal hönd mín sækja þá þangað; þótt þeir stígi upp til himins, þá skal eg steypa þeim ofan þaðan.
Þótt þeir feli sig á Karmeltindi, þá skal eg leita þá þar uppi og sækja þá þangað; og þótt þeir vilji leynast fyrir augum mínum á mararbotni, skal eg þar bjóða sjóorminum að bíta þá.
Og þótt þeir fari á undan óvinum sínum í útlegð, skal eg þar bjóða sverðinu að deyða þá, og eg vil beina augum mínum á þá, þeim til óhamingju, en ekki til hamingju.
Og Drottinn, Drottinn hersveitanna, hann sem snertir jörðina, svo að hún riðar og allir þeir, sem á henni búa, verða sorgbitnir, svo að hún hefst upp alstaðar eins og Níl-fljótið og lækkar eins og fljótið á Egiptalandi —
hann sem reist hefir á himnum sali sína og grundvallað hvelfing sína á jörðinni, hann sem kallaði á vötn sjávarins og jós þeim yfir jörðina — Drottins er nafn hans.
Eruð þér, Ísraelsmenn, mér mætari en Blálendingar? segir Drottinn. Hefi eg eigi flutt Ísrael af Egiptalandi og Filista frá Kaftór og Sýrlendinga frá Kír?
Sjá, auga Drottins Guðs hvílir á þessu glæpafulla konungsríki. Eg skal afmá það af jörðunni, — og þó vil eg ekki með öllu afmá Jakobs niðja, segir Drottinn.
Nei, eg skal svo um bjóða, að Ísraels hús verði hrist út á meðal allra þjóða, eins og korn er hrist í sáldi, án þess að nokkur steinvala falli til jarðar.
Allir syndarar þjóðar minnar skulu falla fyrir sverði, þeir sem segja: Ógæfan mun eigi ná oss né yfir oss koma!
Á þeim degi mun eg endurreisa hina föllnu tjaldbúð Davíðs; eg mun hlaða upp í veggskörðin og reisa hana úr rústum og gjöra hana upp aftur, eins og hún var fyr meir,
til þess að þeir nái undir sig leifum Edóms og öllum þeim þjóðum, sem nafn mitt hefir verið nefnt yfir, segir Drottinn, sá er þessu mun til vegar koma.
Sjá, þeir dagar munu koma, segir Drottinn, að erjandinn skal ná kornskurðarmanninum og víntroðslumaðurinn sáðmanninum. Þá munu fjöllin löðra í vínberjalegi og hálsarnir verða í einu flóði.
Þá mun eg snúa við högum lýðs míns Ísraels; þeir munu byggja upp hinar eyddu borgir og búa í þeim, planta víngarða og drekka vín úr þeim, búa til aldingarða og eta ávöxtu þeirra.
Og eg vil gróðursetja þá í landi þeirra, svo að þeir skulu ekki framar upprættir verða úr landi sínu, því er eg hefi gefið þeim — segir Drottinn, Guð þinn.