Þorlákslitanía

Þorlákslitanía

Heilagi Þorlákur, hæglátur, hógvær og hjartahreinn, bið þú fyrir oss.Heilagi Þorlákur, lærimeistari viskunnar, bið þú fyrir oss.Heilagi Þorlákur, mildi sálnahirðir, bið þú fyrir oss.Heilagi Þorlákur, miskunnsami skriftafaðir, bið þú fyrir oss.Heilagi Þorlákur, málsvari fjölskyldna og heilags hjónabands, bið þú fyrir oss.Heilagi Þorlákur, verjandi kaþólskra lífshátta allra stétta, bið þú fyrir oss.Heilagi Þorlákur, föðurlegi árnaðarmaður, bið þú fyrir oss.Heilagi Þorlákur, sannur fulltrúi Krists, bið þú fyrir oss.Heilagi Þorlákur, tryggur verndardýrlingur Íslands, bið þú fyrir oss.

Þorláksmessa á sumriUm dýrlinginn

Nóvena til heiðurs heilögum Þorláki

Imprimatur: + Davíð B. Tencer OFMCap., Reykjavíkurbiskup, Reykjavík, 12. júlí 2018.

Birt með leyfi biskupsdæmisins.