Bæn til heilags Þorláks
Verndardýrlingur Íslendinga.
Guð, um gjörvallan heim úthellir þú náð þinni og fyrir predikun hins helga Þorláks biskups vilt þú fræða norðlægar slóðir. Veit, að þeir er játast undir kristið nafn megi fyrir árnað hans sýna þá trú í verkum sínum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda. Amen.