Te Deum

Te Deum

Lofsöngur kirkjunnar — sunginn í þakkargjörð.

DROTTINN GUÐ, *þig göfgum vér.Drottinn Guð, *þig dýrkum vér.Þig, Faðir eilífi, *vegsamar öll veröldin.Þig lofar engla helgur her, *allt heimsins veldi lýtur þér.Þig lofa sælir serafar, *þér syngja vegsemd kerúbar:Heilagur, heilagur, heilagur ert þú, *Guð, Drottinn allsherjar.Þín heilög vera, hátign þín *um himna, jörð og geima skín.Þig prísa spámenn, postular *og píslarvotta fylkingar,og heilög kirkjan hér á jörð *þér helgar lof og þakkargjörð.Ó Faðir vor, *vér þökkum þér,ó Kristur Drottinn, * dýrð sé þér,ó lífsins Andi, *lof sé þér,þig Heilög Þrenning, *heiðrum vér.Guðs Sonur, Kristur, kóngur hár, *sem komst að græða mein og sár,þú gerðist hold til hjálpar oss *og háðung leiðst og dóm og kross.Þú hefur dauðans afli eytt *og oss til lífsins veginn greitt.Þú situr Guðs á hægri hönd *og hefur alheims ríkisvönd.Þú birtist enn á efstu tíð *og allan dæmir heimsins lýð.Vér biðjum: þjóna þína styð, *sem þú með blóði keyptir frið.Veit þú vér öðlumst arfleifð þá, *sem ávann náð þín rík og há.Þinn söfnuð, Herra, hólpinn ger, *gef honum eilíft líf með þér.Veit honum styrk og vörn og skjól *og vegsemd við þinn konungsstól.Nafn þitt sé blessað nær og fjær *og náð þín trú og dýrðarskær.Við synd og háska hverja stund *oss hlífi, Guð, þín sterka mund.Miskunna oss, í líkn oss leið, *ver ljós og stoð í allri neyð.Hjá einum þér er athvarf, hlíf, *vor eina hjálp og sanna líf.Guð allrar vonar, ver oss hjá *og veit oss þína dýrð að sjá.

Birt með leyfi úr Bænakveri, Kaþólska Kirkjan á Íslandi, 2. útgáfa 2019 (ISBN 978-9935-9543-0-5).