Ó, Guð, þú sem ert skjól vort
Bæn fyrir kirkjunni og afturhvarfi syndara.
Ó, Guð, þú sem ert skjól vort og styrkur, lít í miskunn niður til barna þinna sem hrópa til þín. Vér biðjum þig Guð, vegna fyrirbæna dýrlegrar og flekklausrar Maríu meyjar, móður Guðs, heilags Jósefs, brúðguma meyjarinnar, þinna sælu postula Péturs og Páls og allra dýrlinga, að bænheyra oss um afturhvarf syndara og frelsi og upphefð vorrar heilögu móður, kirkjunnar. Þess biðjum vér fyrir Krist Drottin vorn. Amen.