Salve Regina
Heil sért þú, drottning, móðir miskunnarinnar: Líf, yndi og von vor, heil sért þú.
Til þín hrópum vér, útlæg börn Evu. Til þín andvörpum vér, stynjandi og grátandi í þessum táradal.
Talsmaður vor, lít þú miskunnarríkum augum þínum til vor og sýn þú oss, eftir þennan útlegðartíma, Jesú, hinn blessaða ávöxt lífs þíns, milda, ástríka og ljúfa María mey.
Bið þú fyrir oss heilaga Guðsmóðir. Svo vér verðum makleg fyrirheita Krists. Amen
Nótur
Einfaldi tónninn — V. tónn
Lækkunarmerkið á miðlínunni gildir allt lagið.
Heil sért þú, drottning, móðir miskunnarinnar:
Líf, yndi og von vor, heil sért þú.
Til þín hrópum vér, útlæg börn Evu.
Til þín andvörpum vér, stynjandi og grátandi
í þessum táradal.
Talsmaður vor, lít þú miskunnarríkum
augum þínum til vor og sýn þú oss,
eftir þennan útlegðartíma, Jesú, hinn blessaða ávöxt lífs þíns,
milda, ástríka
og ljúfa María mey.
Liber Usualis, bls. 279 · GregoBase 13136. Íslenski textinn er lagaður að laginu fyrir Krans — Í yfirlestri.