Rósakrans miskunnarinnar
Bænin er beðin með talnabandinu og hefst á Faðir vori, Maríubæn og trúarjátningunni
Við stóru perlurnar er beðið:
Eilífi Faðir, ég fórna þér líkama og blóði, sálu og guðdómi þíns heittelskaða Sonar, Drottins vors Jesú Krists, til þess að öðlast fyrirgefningu synda vorra og synda alls heimsins.
Við litlu perlurnar er beðið:
Vegna þungbærra þjáninga Krists,– miskunna þú oss og gjörvöllum heimi.
Við lok talnabandsins er endurtekið þrisvar:
Heilagi Guð, heilagi sterki Guð, heilagi ódauðlegi Guð,– miskunna þú oss og gjörvöllum heimi.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldirsvo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautumog eigi leið þú oss í freistniheldur frelsa oss frá illu.Amen.
Maríubæn
Heil sért þú María, full náðar.Drottinn er með þér; blessuð ert þú meðal kvenna,og blessaður er ávöxtur lífs þíns, Jesús.Heilaga María, Guðsmóðir, bið þú fyrir oss syndugum mönnum,nú og á dauðastundu vorri.Amen.