Níu daga fyrirbænir til hins heilaga hjarta Jesú

Níu daga fyrirbænir til hins heilaga hjarta Jesú

Þú, helgasta Hjarta Jesú, uppspretta sérhverrar blessunar, ég tilbið þig, ég elska þig, og með lifandi sorgun fyrir syndir mínar býð ég þér hið fátæka hjarta mitt. Gerðu mig lítillátan, þolinmóðan, hreinan og algjörlega hlýðinn vilja þínum. Gefðu, góði Jesús, að ég megi lifa í þér og fyrir þig. Verndaðu mig fyrir allri hættu umhverfis mig, styrktu mig í þjáningum, gefðu líkama mínum heilsu, aðstoð í veraldlegum þörfum mínum, blessun alls sem ég gjöri og þá náð að deyja í örmum þínum. Amen.

Loforð Drottins vors til heilagrar Margrétar Maríu, handa sálum helguðum hans heilaga Hjarta

Ég mun veita þeim alla náð sem nauðsynleg er stöðu þeirra.Ég mun fylla hús þeirra friði.Ég mun styrkja þá í öllum þeirra þjáningum.Ég mun vera þeim öruggt athvarf í lífi og einkum á dauðastund.Ég mun veita mikla blessun öllum verkum þeirra.Syndarar munu finna í Hjarta mínu ótæmandi uppsprettu miskunnar.Hálfvolgar sálir munu verða brennandi.Brennandi sálir munu fljótlega öðlast fullkomnun.Ég mun blessa hvern þann stað þar sem mynd af Hjarta mínu er heiðruð.Ég mun gefa prestum þann hæfileika að snerta hjörtu sem eru steinrunnin.Þeir sem munu útbreiða þessa hollustu, munu fá nöfn sín skrifuð í Hjarta mitt til eilífðar.Ég lofa yður af hinni ótakmörkuðu náð Hjarta míns, að mín almáttuga ást mun veita öllum þeim, sem meðtaka altarissakramentið fyrsta föstudag í níu mánuði samfleytt, mína endanlegu miskunn. Þeir munu ekki deyja í minni ónáð, eða án þess að fá sjúkrasakramentin. Mitt guðdómlega Hjarta mun vera öruggt athvarf þeirra á lokastund.

Birt með leyfi úr Bænakveri, Kaþólska Kirkjan á Íslandi, 2. útgáfa 2019 (ISBN 978-9935-9543-0-5).