Litanía af Jesú allra helgasta nafni
Drottinn, miskunna þú oss.Kristur, miskunna þú oss.Drottinn, miskunna þú oss.Jesús, heyr þú oss.Jesús, bænheyr þú oss.
Guð, Faðir í himnaríki,Guð, Sonur, Lausnari heimsins,Guð, Heilagur Andi,Heilög Þrenning, einn Guð,
Miskunna þú oss.
Jesús, Sonur hins lifanda Guðs,Jesús, dýrð Föðurins,Jesús, ljómi eilífs ljóss,Jesús, konungur dýrðarinnar,Jesús, sól réttvísinnar,Jesús, sonur Maríu meyjar,Ástúðlegi Jesús,Dásamlegi Jesús,Jesús, sterki Guð,Jesús, faðir ókominna alda,Jesús, sendiboði hins mikla ráðs,Máttugasti Jesús,Þolinmóði Jesús,Hlýðnasti Jesús,Jesús, hógvær og lítillátur af hjarta,Jesús, elskandi skírlífisins,Jesús, unnandi vor,Jesús, Guð friðarins,Jesús, höfundur lífsins,Jesús, fyrirmynd dyggðanna,Jesús, vandlætari sálnanna,Jesús, Guð vor,Jesús, faðir hinna fátæku,Jesús, fjársjóður trúaðra,Jesús, hinn góði hirðir,Jesús, sanna ljós,Jesús, eilífa viska,Jesús, þrotlausa gæska,Jesús, leið vor og líf,Jesús, fögnuður englanna,Jesús, konungur ættfeðranna,Jesús, andagift spámannanna,Jesús, fræðari postulanna,Jesús, kennari guðspjallamannanna,Jesús, styrkur píslarvottanna,Jesús, ljós játendanna,Jesús, skírleikur meyjanna,Jesús, kóróna allra heilagra.
Miskunna þú oss.
Ver oss náðugur – væg þú oss, Jesús.Ver oss náðugur – bænheyr þú oss, Jesús.
Frá öllu illu,Frá allri synd,Frá reiði þinni,Frá vélráðum djöfulsins,Frá anda óskírlífis,Frá eilífum dauða,Frá afrækslu innblásturs þíns.Fyrir leyndardóm heilagrar holdtekju þinnar,Fyrir fæðingu þína,Fyrir barnæsku þína,Fyrir guðdómlega æfi þína,Fyrir þrautir þínar,Fyrir dauðastríð þitt og píslir,Fyrir kross þinn og einstæðingsskap,Fyrir heldrunga þinn,Fyrir dauða þinn og greftrun,Fyrir upprisu þína,Fyrir himnaför þína,Fyrir stofnun hins helgasta Altarissakramentis þíns,Fyrir kæti þína,Fyrir dýrð þína.
Frelsa oss Jesús.
Guðs Lamb, sem ber burt syndir heimsins,
– væg þú oss, Jesús.
Guðs Lamb, sem ber burt syndir heimsins,
– bænheyr þú oss, Jesús.
Guðs Lamb, sem ber burt syndir heimsins,
– miskunna þú oss, Jesús.
Jesús, heyr þú oss.
– Jesús, bænheyr þú oss.
Lofað veri Drottins nafn
– nú og að eilífu.
Vér skulum biðja:
Drottinn vor, Jesús Kristur, þú sagðir: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upplokið verða; vér biðjum þig að gefa oss heilagan eld guðdómlegrar ástar þinnar, svo að vér elskum þig af öllu hjarta með orðum og athöfnum og vegsömum þig án afláts. Unn þú oss þess, Drottinn, að vér ætíð óttumst og elskum þitt heilaga nafn, með því að þá skortir aldrei vernd þína, sem þú hefur grundvallað í kærleika þínum. Þú sem lifir og ríkir um aldir alda. Amen.