Memorare
Mildiríka María mey, minnst þú þess, að aldrei hefur það komið fyrir, að nokkur maður hafi árangurslaust snúið sér til þín og ákallað hjálp þína og árnaðarbæn. Til þín sný ég mér því með fullu trúnaðartrausti, móðir mín og meyjan öllum meyjum æðri; til þín kem ég, frammi fyrir þér stend ég, aumi syndari. Móðir eilífa Orðsins, fyrirlít þú ekki bæn mína, heldur veit þú mér áheyrn og bænheyr mig. Amen
Bið þú fyrir oss heilaga Guðsmóðir. Svo að vér verðum makleg fyrirheita Krists. Amen