Maríulitanía

Maríulitanía

Lóretts-litanían — ákallanir Maríu.

Þar sem svar er ekki prentað er svarað við hverja ákallan til Guðs: Miskunna þú oss. Við hverja ákallan til Maríu: Bið þú fyrir oss. · Í yfirlestri

Drottinn, miskunna þú oss.Kristur, miskunna þú oss.Drottinn, miskunna þú oss.Kristur, heyr þú oss.Kristur bænheyr þú oss.

Guð, Faðir í himnaríki,Guð, Sonur, Lausnari heimsins,Guð, Heilagur Andi,Heilög Þrenning, einn Guð,Heilög María,Heilög Guðs móðir,Heilög mey, öllum meyjum fremri,Móðir Krists,Móðir kirkjunnar,Móðir guðdómlegrar náðar,Tárhreina móðir,Alskíra móðir,Óspjallaða móðir,Ósnortna móðir,Elskuverða móðir,Dásamlega móðir,Móðir ráðgæskunnar,Móðir Skaparans,Móðir Lausnarans,Alspaka mey,Virðulega mey,Vegsamlega mey,Volduga mey,Gæskuríka mey,Trygga mey,Skuggsjá réttvísinnar,Öndvegi viskunnar,Gleðiefni vort,Andans ker,Virðulega ker,Göfuga guðræknisker,Dularfulla rós,Davíðs turn,Fílabeinsturn,Gullna hús,Sáttmálsörk,Himna hlið,Morgunstjarna,Hressing sjúkra,Athvarf syndara Huggari hrelldra,Hjálp kristinna manna,Drottning englanna,Drottning ættfeðranna,Drottning spámannanna,Drottning postulanna,Drottning píslarvottanna,Drottning játendanna,Drottning meyjanna,Drottning allra heilagra,Drottning getin óflekkuð af erfðasynd,Drottning numin upp til himna,Drottning rósakransins helga,Drottning fjölskyldna,Drottning friðarins,

Guðs Lamb, sem ber burt syndir heimsins,– væg þú oss, Drottinn.Guðs Lamb, sem ber burt syndir heimsins,– bænheyr þú oss, Drottinn.Guðs Lamb, sem ber burt syndir heimsins,– miskunna þú oss, Drottinn.

Bið fyrir oss, heilaga Guðsmóðir,svo að vér verðum makleg fyrirheita Krists.

Vér skulum biðja:

Drottinn, vér biðjum þig, að vér, þjónar þínir, megum njóta varanlegrar heilsu á líkama og sál og að fyrir dýrlegar bænir blessaðrar Maríu, ætíð meyjar, verðum vér leyst úr þeirri prísund sorgar sem nú þjakar oss og leidd inn í gleði eilífrar hamingju. Fyrir Krist, Drottin vor. Amen.

Birt með leyfi úr Bænakveri, Kaþólska Kirkjan á Íslandi, 2. útgáfa 2019 (ISBN 978-9935-9543-0-5).