Lítanía til heilags Jósefs

Lítanía til heilags Jósefs

Ákallanir heilags Jósefs, verndara kirkjunnar.

Drottinn, miskunna þú oss.Kristur, miskunna þú oss.Drottinn, miskunna þú oss.Kristur, heyr þú oss.Kristur, bænheyr þú oss.Guð Faðir í himnaríki, miskunna þú oss.Guðs Sonur, Frelsari heimsins, miskunna þú oss.Guð Heilagi Andi, miskunna þú oss.Heilaga Þrenning, einn Guð, miskunna þú oss.

Heilaga María,Heilagi Jósef,Lofsamlegi niðji Davíðs,Ljós patríarkanna,Brúðgumi Móður Guðs,Skírlífi verndari meyjarinnar,Fósturfaðir Guðs Sonar,Dyggi verndari Krists,Yfirmaður hins heilaga heimilis,Réttláti Jósef,Skírlífi Jósef,Vísi Jósef,Staðfasti Jósef,Hlýðni Jósef,Trúfasti Jósef,Spegill þolinmæðinnar,Vinur fátæktarinnar,Fyrirmynd verkamannanna,Prýði heimilislífsins,Verndari meyjanna,Stoð heimilanna,Huggun ógæfusamra,Von sjúklinganna,Talsmaður deyjenda,Ótti illra anda,Verndari heilagrar kirkju,

bið þú fyrir oss

Guðs lamb, sem burtber syndir heimsins, Drottinn, væg þú oss.Guðs lamb, sem burtber syndir heimsins, Drottinn, bænheyr þú oss.Guðs lamb, sem burtber syndir heimsins, Drottinn, miskunna þú oss.

P. Hann setti hann yfir hús sitt.

S. Og æðstan yfir allar eignir sínar.

Látum oss biðja: Guð, þú sem af óskiljanlegri forsjón þinni útvaldir sælan Jósef til brúðguma hinnar heilögu móður, vér biðjum þig, gef oss að hann, er vér hér á jörðu tignum sem verndara vorn, megi vera talsmaður vor á himnum. Þú sem lifir og ríkir frá eilífð til eilífðar. Amen.

JósefsmessaUm dýrlinginn

Í yfirlestri — Texti úr Kaþólskum bænum 1922, stafsetning færð til nútímahorfs.