Litanía af allrahelgasta hjarta Jesú

Litanía af allrahelgasta hjarta Jesú

Drottinn, miskunna þú oss.Kristur, miskunna þú oss.Drottinn, miskunna þú oss.Kristur, heyr þú oss.Kristur, bænheyr þú oss.

Guð, Faðir í himnaríki,Guð, Sonur, Lausnari heimsins,Guð, Heilagur Andi,Heilög Þrenning, einn Guð,

Hjarta Jesú, Sonar Föðurins eilífa,Hjarta Jesú, gert í skauti meymóðurinnar af Heilögum Anda,Hjarta Jesú, innilega sameinað eilífu Orði Guðs,Hjarta Jesú, óendanlega dýrðlegt,Hjarta Jesú, heilagt musteri Guðs,Hjarta Jesú, tjaldbúð hins hæsta Guðs,Hjarta Jesú, Guðs hús og himinshlið,Hjarta Jesú, logandi arinn kærleikans,Hjarta Jesú, hæli réttlætis og kærleika,Hjarta Jesú, fullt gæsku og kærleika,Hjarta Jesú, ómælisdjúp allra dyggða,Hjarta Jesú, allrar lofgerðar maklegt,Hjarta Jesú, konungur og miðja allra hjartna,Hjarta Jesú, sem geymir alla fjársjóði visku og fræða,Hjarta Jesú, þar sem fylling Guðdómsins býr,Hjarta Jesú, sem Faðirinn hefur velþóknun á,Hjarta Jesú, sem hefur veitt oss hlut í gnægð þinni,Hjarta Jesú, þrá eilífra hæða,Hjarta Jesú, þolgott og miskunnarríkt,Hjarta Jesú, örlátt við alla sem ákalla þig,Hjarta Jesú, uppspretta lífs og helgi,Hjarta Jesú, friðþæging synda vorra,Hjarta Jesú, háðungum satt,Hjarta Jesú, sundurkramið sakir misgerða vorra,Hjarta Jesú, hlýðið til dauðans,Hjarta Jesú, geiri gegnumstungið,Hjarta Jesú, lind allrar huggunar,Hjarta Jesú, líf vort og upprisa,Hjarta Jesú, friður vor og sátt,Hjarta Jesú, friðþægingarfórn syndugra,Hjarta Jesú, hjálpræði þeirra sem treysta þér,Hjarta Jesú, von þeirra sem deyja í þér,Hjarta Jesú, unaðssemd allra heilagra,

Guðs Lamb, sem ber burt syndir heimsins,

– væg þú oss, Drottinn.

Guðs Lamb, sem ber burt syndir heimsins,

– bænheyr þú oss, Drottinn.

Guðs Lamb, sem ber burt syndir heimsins,

– miskunna þú oss, Drottinn.

Jesús, hógvær og lítillátur af hjarta,

– ger þú hjarta vort líkt þínu hjarta.

Vér skulum biðja:

Almáttugi, eilífi Guð, lít þú hjarta þíns elskulega Sonar og þá vegsemd og friðþægingu, sem hann flytur þér í nafni syndugra og fyrirgef þú af gæsku þinni öllum, sem beiðast líknar þinnar í nafni Sonar þíns, Jesú Krists, sem lifir og ríkir með þér í einingu Heilags Anda, Guð um aldir alda. Amen.

Birt með leyfi úr Bænakveri, Kaþólska Kirkjan á Íslandi, 2. útgáfa 2019 (ISBN 978-9935-9543-0-5).