Helgun mannkynsins til hins alhelga hjarta Jesú
Alblíði Jesús, Endurlausnari mannkynsins, lít þú niður til vor, sem í dýpstu auðmýkt krjúpum frammi fyrir altari þínu. Vér erum þínir og þínir viljum vér ætíð vera; en til þess að vér getum verið ennþá innilegar sameinaðir þér, þá helgar sig sérhver af oss, af frjálsum vilja, þínu alhelga hjarta.
Margir hafa aldrei þekkt þig, margir hafa fyrirlitið boð þín og afneitað þér. Líknsamasti Jesús, miskunna þú sérhverjum þeirra, og laða þá alla að þínu alhelga hjarta. Drottinn, vertu konungur, ekki aðeins þeirra trúuðu, sem aldrei hafa vikið frá þér, heldur einnig hinna týndu barna, sem hafa yfirgefið þig. Bjóð þú að þau snúi brátt aftur til föðurhússins, svo að þau farist ekki af eymd og hungri. Vertu konungur þeirra, sem hafa villst eða hafa skilið við þig sakir sundurlyndis, og kalla þá aftur í höfn sannleikans og einingu trúarinnar, svo að bráðlega verði ein hjörð og einn hirðir.
Drottinn, veittu að kirkja þín megi þróast örugg og frjáls, veit öllum þjóðum frið og samlyndi, lát frá hafi til hafs aðeins heyrast þetta kall: „Lofað sé hið guðdómlega hjarta, sem hefur veitt oss sáluhjálp. Dýrð og vegsemd sé því um alla eilífð.“ Amen.