Heilagur Mikael

Heilagur Mikael

Bæn til höfuðengilsins um vernd.

Heilagur Mikael, höfuðengill, vernda þú oss í baráttu vorri. Vertu vernd vor og skjól gegn vélabrögðum og snörum djöfulsins. Í auðmýkt biðjum vér þess að Guð megi setja ofan í við djöfulinn, og að þú, prins hinna himnesku hersveita, megir með krafti Guðs reka Satan og alla þá illu anda sem ráfa um heiminn í þeim tilgangi að tortíma sálum, niður til Heljar. Amen.

Úr bænabók safnaðarins