2. Fyrir framliðnum
Lýk ég nú bæn minni með því að biðja fyrir öllum kristnum sálum, sem fram hafa farið af heiminum frá upphafi og minna bæna með þurfa. Ég bið allsvaldandi Guð, að hann veiti þeim fyrirgefningu allra synda og gefi þeim eilífa hvíld og óþrjótandi ljós til efsta dags. En á upprisudegi veiti hann sálum vorum óumræðilegan fögnuð með sjálfum sér og öllum himneskum hersveitum. Amen