Engill Drottins (samfelldur texti)

Engill Drottins (samfelldur texti)

Sami texti án versa og svara.

Engill Drottins flutti Maríu fagnaðarboðskapinn,– og hún fékk getnað af Heilögum Anda.Heil sért þú, María…Sjá, ég er ambátt Drottins,– verði mér eftir orði þínu.Heil sért þú, María…Og Orðið varð hold– og bjó meðal vor.Heil sért þú, María…Bið fyrir oss, heilaga Guðsmóðir.Svo að vér verðum makleg fyrirheita Krists.

Vér skulum biðja:

Vér biðjum þig, Drottinn, úthell náð þinni í hjörtu vor, svo að vér, sem fyrir fagnaðarboðskap engilsins höfum orðið þess vísari að Sonur þinn er maður orðinn, verðum fyrir þjáningar hans og kross leiddir til upprisu dýrðarinnar. Fyrir Krist, Drottin vorn. Amen.

Bænatextar eru frá Reykjavíkurbiskupsdæmi (catholica.is). Sótt 6. ágúst 2026.