Litanía af hinu dýrmæta blóði

Litanía af hinu dýrmæta blóði

Drottinn, miskunna þú oss.Kristur, miskunna þú oss.Drottinn, miskunna þú oss.Kristur, heyr þú oss.Kristur, bænheyr þú oss.

Guð, Faðir í himnaríki,Guð, Sonur, Lausnari heimsins,Guð, Heilagur Andi,Heilög Þrenning, einn Guð,

Miskunna þú oss.

Blóð Krists, eingetins Sonar hins eilífa Föður,Blóð Krists, holdi klætt Orð Guðs,Blóð Krists, hins nýja og eilífa sáttmála,Blóð Krists, sem draup á jörðina í helstríðinu,Blóð Krists, yfirfljótanlega úthellt í húðstrýkingunni,Blóð Krists, sem streymdi frá þyrnikrýningunni,Blóð Krists, úthellt á krossinum,Blóð Krists, lausnargjald frelsunarinnar,Blóð Krists, en án þess er engin fyrirgefning,Blóð Krists fórnardrykkur og næring sálarinnar,Blóð Krists, straumur miskunnar,Blóð Krists, sigurvegari djöfla,Blóð Krists, hugrekki píslarvotta,Blóð Krists, styrkur trúarjátenda,Blóð Krists, sem elur af sér hreinar meyjar,Blóð Krists, hjálp þeirra sem háska mæta,Blóð Krists, fróun þeirra sem þunga byrði bera,Blóð Krists, huggun sorgmæddra,Blóð Krists, von hins iðrandi manns,Blóð Krists, huggun hinna deyjandi,Blóð Krists, friður og hjartagæska,Blóð Krists, fyrirheit eilífs lífs,Blóð Krists, sem frelsar sálir úr hreinsunareldinum,Blóð Krists, verðugt allrar dýrðar og heiðurs.

Frelsa þú oss.

Guðs Lamb, sem ber burt syndir heimsins,

– væg þú oss, Drottinn.

Guðs Lamb, sem ber burt syndir heimsins,

– bænheyr þú oss, Drottinn.

Guðs Lamb, sem ber burt syndir heimsins,

– miskunna þú oss, Drottinn.

Í blóði þínu hefur þú, Drottinn, frelsað oss,

– og gert oss að konungsríki Guðs vors.

Vér skulum biðja:

Almáttugi og eilífi Guð, þú hefur gert eingetinn Son þinn að frelsara heimsins og vilt að blóð hans verði friðþæging öllum mönnum. Vér biðjum þig, veit oss að vér mættum verðuglega tilbiðja þetta gjald sáluhjálpar vorrar, og fyrir kraft þess öðlast vernd gegn hinu illa í þessum heimi, svo að vér getum fagnað í ávöxtum þess um alla eilífð á himnum. Þess biðjum vér fyrir sama Drottin vorn, Jesúm Krist. Amen.

Birt með leyfi úr Bænakveri, Kaþólska Kirkjan á Íslandi, 2. útgáfa 2019 (ISBN 978-9935-9543-0-5).