Dagleg helgunarbæn
Drottinn, Jesús Kristur, með þjáningu þinni og dauða tókst þú á þig alla vora sekt og leystir oss frá syndum. Úr gegnumstunginni síðu þinni streymdi blóð og vatn, úr hjarta þínu sakramenti kirkjunnar. Í heilagri messu býður þú oss á hverjum degi fyrirgefandi kærleika þinn. Þess vegna ber ég fram fyrir þig í dag bæði bæn mína og störf, gleði og sorgir. Sameina það fórn þinni til friðþægingar fyrir syndir vorar. Tak þú á móti fátæklegri fórn minni fyrir kirkju þína, sérstaklega fyrir þeim bænarefnum, sem páfinn hvetur oss til að minnast í þessum mánuði. Allt þetta vil ég gera í samfélagi við Maríu, móður Guðs og móður vora. Amen.