Bæn við helgun sjálfs sín til árnunar Jesú guðdómlega hjarta
Ég helga og fel sjálfa(n) mig, líf mitt, athafnir mínar, þrautir mínar og þjáningar, allra helgustu hjarta Drottins vors Jesú Krists til árnunar og einset mér að elska hann einan og vegsama framvegis. Það er öruggur og óbifanlegur ásetningur minn að ganga honum einum til handa, vinna allt sakir elsku á honum og hafna af alhug öllu því, er hans guðdómlega hjarta má mislíka.
Fyrir því kýs ég að hafa ást á þér einu, allra helgasta hjarta, og engu öðru, leita óhults hælis hjá þér, grundvalla sáluhjálp mína á þér, styðjast við þig í veikleika mínum og fá frá þér bætur fyrir öll afbrot mín. Ó, miskunnsemdanna hjarta, gæskuríka hjarta, veit þú mér einnig óhult hæli á dauðastundu minni, réttlæt mig fyrir Guði og bæg frá mér hans réttlátu refsingu.
Ó, kærleikans hjarta. Ég ber fullt traust til þín. Ég óttast allt sakir vonsku minnar, en ég vænti og alls góðs sakir gæsku þinnar. Nem því á braut úr fari mínu allt það, er þér má mislíka. Lát hreina elsku á þér festa djúpar rætur í hjarta mínu, svo að ég gleymi þér aldrei, hverfi aldrei frá þér. Guðdómlega hjarta, ég grátbæni þig sakir ævinlegrar gæsku þinnar, að nafn mitt megi festa djúpar rætur í þér, af því að ég vil lifa og deyja í þinni þjónustu. Amen.