Engill Drottins

Engill Drottins

Miðdegisbænin, með versum og svörum.

V. Engill Drottins flutti Maríu fagnaðarboðskapinnR. Og hún fékk getnað af Heilögum Anda.

Heil sért þú María, full náðar. Drottinn er með þér; blessuð ert þú meðal kvenna; og blessaður er ávöxtur lífs þíns, Jesús. Heilaga María, Guðsmóðir, bið þú fyrir oss syndugum mönnum, nú og á dauðastundu vorri. Amen.

V. Sjá, ég er ambátt Drottins.R. Verði mér eftir orði þínu.Heil sért þú María,…V. Orðið varð holdR. Og bjó meðal vor.Heil sért þú María,…V. Bið þú fyrir oss, heilaga guðsmóðir,R. Svo að vér verðum makleg fyrirheita Krists.

Vér skulum biðja:

Drottinn, vér höfum fyrir fagnaðarboðskap engilsins Orðið þess vísari, að Sonur þinn er maður orðinn. Vér biðjum þig, úthell náð þinni í hjörtu vor, svo að fyrir þjáningar Krists og kross verðum vér leiddir til upprisu dýrðarinnar. Fyrir Krist, drottin vorn. Amen.

Bænatextar eru frá Reykjavíkurbiskupsdæmi (catholica.is). Sótt 6. ágúst 2026.