Litanía til allra heilagra
Drottinn, miskunna þú oss.Kristur, miskunna þú oss.Drottinn, miskunna þú oss.Kristur, heyr þú oss.Kristur, bænheyr þú oss.
Guð, Faðir í himnaríki,Guð, Sonur, Lausnari heimsins,Guð, Heilagur Andi,Heilög Þrenning, einn Guð,
Miskunna þú oss.
Heilaga María,Heilaga Guðsmóðir,Heilaga Mey, allra meyja æðst,Heilagi Mikael,Heilagi Gabríel,Heilagi Rafael,Allir heilagir englar og höfuðenglar, biðjið fyrir oss.Allar heilagar sveitir sælu andanna,Heilagi Jóhannes skírari, bið …Heilagi Jósef, bið …Allir heilagir patríarkar og spámenn, biðjið fyrir oss.Heilagi Pétur,Heilagi Páll,Heilagi Andrés,Heilagi Jakob,Heilagi Jóhannes,Heilagi Tómas,Heilagi Jakob,Heilagi Filippus,Heilagi Bartólómeus,Heilagi Matthías,Heilagi Símon,Heilagi Taddeus,Heilagi Mattías,Heilagi Barnabas,Heilagi Lúkas,Allir heilagir postular og guðspjallamenn, biðjið…Allir heilagir lærisveinar Drottins,Öll heilög saklaus börn,Heilagi Stefán, bið…Heilagi Laurentíus,Heilagi Vinsentíus,Heilögu Fabían og Sebastían, biðjið…Heilögu Jóhannes og Páll,Heilögu Kosmas og Damían,Heilögu Gervasíus og Prótasíus,Allir heilagir píslarvottar,Heilagi Sylvester,Heilagi Gregor,Heilagi Ambrósíus,Heilagi Ágústínus,Heilagi Híeronymus,Heilagi Marteinn,Heilagi Nikulás,Heilagi Þorlákur, bið…Allir heilagir biskupar og játendur, biðjið…Allir heilagir kennimenn,Heilagi Antoníus,Heilagi Benedikt,Heilagi Bernharður,Heilagi Dóminíkus,Heilagi Frans,Allir heilagir prestar og levítar, biðjið…Allir heilagir munkar og einsetumenn,Heilaga Agatha,Heilaga Lúsía,Heilaga Agnes,Heilaga Sesselja,Heilaga Katrín,Heilaga Anastasía,Allar heilagar meyjar og ekkjur, biðjið…
Bið fyrir oss.
Allir Guðs heilagir og heilagar,
– flytjið árnaðarorð vor vegna.
Vert þú oss náðugur,
– væg þú oss, Drottinn.
Vert þú oss náðugur,
– bænheyr þú oss, Drottinn.
Frá öllu illu,Frá allri synd,Frá reiði þinni,Frá snöggum og óvæntum dauða,Frá reiði og hatri og öllum illvilja,Frá anda óskírlífis,Frá eldingu og óveðri,Frá plágu landskjálftanna,Frá pest, hungursneyð og styrjöldum,Frá eilífum dauða,Sakir leyndardóms mannlegrar holdtekju þinnar,Sakir komu þinnar,Sakir fæðingar þinnar,Sakir skírnar þinnar og heilagrar föstu,Sakir kross þíns og þjáninga,Sakir dauða þíns og greftrunar,Sakir heilagrar upprisu þinnar,Sakir komu huggarans, Heilags Anda, frelsa oss, Drottinn.Á dómsdegi, frelsa oss, Drottinn.
Frelsa oss, Drottinn.
Vér syndarar biðjum þig, heyr þú oss.Að þú vægir oss, vér biðjum þig, frelsa þú oss.
Að þú fyrirgefir oss, vér biðjum…Að þér þóknist að leiða oss til sannrar yfirbótar,Að þér þóknist að stjórna og varðveita þína heilögu kirkju,Að þér þóknist að varðveita postullegan yfirhirði og allar stéttir kirkjunnar í heilagri trú,Að þér þóknist að kalla til iðrunar óvini hinnar heilögu kirkju,Að þér þóknist að veita kristnum þjóðhöfðingjum frið og gott samlyndi,Að þér þóknist að veita allri kristninni frið og sátt,Að þér þóknist að styrkja og varðveita sjálfa oss í heilagri þjónustu þinni,Að þú vekir í hugum vorum himneska þrá,Að þú veitir öllum velgerðamönnum vorum eilífu gæðin að launum,Að þú varðveitir sálir vorar, bræðra vorra, náunga og velgerðamanna frá eilífri fordæmingu,Að þér þóknist að gefa oss gróður jarðarinnar og viðhaldir honum,Að þér þóknist að veita öllum trúuðum framliðnum hina eilífu hvíld.Að þér þóknist að bænheyra oss, Guðs Sonur,
Vér biðjum þig, heyr þú oss.
Guðs Lamb, sem ber burt syndir heimsins,
– væg þú oss, Drottinn.
Guðs Lamb, sem ber burt syndir heimsins,
– bænheyr þú oss, Drottinn.
Guðs Lamb, sem ber burt syndir heimsins,
– miskunna þú oss, Drottinn.
Kristur, heyr þú oss.Kristur, bænheyr þú oss.Drottinn, miskunna þú oss.Kristur, miskunna þú oss.Drottinn, miskunna þú oss.
Faðir vor…